Dimmiteringu aflýst í VMA

VMA. Mynd/Hörður Geirsson.
VMA. Mynd/Hörður Geirsson.

Dimmiteringu í Verkmenntaskólanum á Akureyri hefur verið aflýst eftir hádegi vegna óspekta. Samkvæmt heimildum Vikudags voru nokkrir nemendur undir áhrifum áfengis innan skólans þar sem einn nemandi kastaði bjór í kennara, braut rúðu og pissað í ruslafötu. Hjalti Jón Sveinsson, skólameistari VMA, staðfesti í samtali við Vikudag að dagskránni eftir hádegi hafi verið aflýst vegna ölvunar nemenda innan skólans.

throstur@vikudagur.is

Nýjast