Meirihluti framkvæmdaráðs á Akureyri hefur samþykkt tillögur um framkvæmdir á árinu vegna sérstaks umhverfisátaks sem bæjarstjórn veitir hálfan milljarð króna í á næstu fimm árum. Tillögurnar voru samþykktar með þremur atkvæðum gegn tveimur atkvæðum Njáls Trausta Friðbertssonar D-lista og Sigfúsar Arnars Karlssonar B-lista. Þeir Njáll Trausti og Sigfús eru ósáttir við þau 20% sem áætlaðar eru í framkvæmdir fyrir Siglingaklúbbinn Nökkva. Við hjá Sjálfstæðisflokki erum hlynntir framkvæmdum hjá svæði Nökkva en ekki með þessum hætti, segir Njáll Trausti í samtali við Vikudag.
Léleg stjórnsýsla
Þessar framkvæmdir ættu að falla inn í framkvæmdaáætlun bæjarins en ekki undir sérstakt umhverfisátak. Að taka beina framkvæmd inn í þetta átak finnst mér öfugsnúið og til marks um lélega stjórnsýslu hjá L-listanum. Mér finnst þetta ákveðin sýndarmennska og það er hvergi minnst á hvernig eigi að klára þetta verkefni, en það gerist ekki með þessum 20 milljónum.
Nánar er rætt við Njál Trausta og fjallað um umhverfisátakið í prentútgáfu Vikudags.