Akureyrarbær hyggst fara með mál Snorra Óskarssonar kennara, jafnan kenndan við Betel, fyrir dómstóla. Þetta var ákveðið á bæjarráðsfundi í morgun en þar var bæjarlögmaður Akureyrar, Inga Þöll Þórgnýsdóttir, sérstaklega kvödd á fundinn og fól bæjarráð henni að bera úrskurð ráðuneytisins undir dómstóla.
Innanríkisráðuneytið hafði áður úrskurðað að ákvörðun Akureyrarbæjar að segja Snorra upp sem kennara við Brekkuskóla árið 2012 ólögmæta og sömuleiðis áminning sem hann fékk frá bænum. Snorra var sagt upp störfum vegna bloggskrifa, þar sem samkynhneigð var m.a. fordæmd. Akureyrarbær telur að rétt hafi verið að víkja Snorra frá störfum.