Dásamlegur lúðuréttur og eplarúlla

Anna B Ívarsdóttir
Anna B Ívarsdóttir

Anna B Ívarsdóttir kokkur á Hótel Glym í Hvalfirði er mætt í krókinn með spennandi rétti sem eflaust munu gleðja bragðlauka lesenda Vikudags.

 

Dásamlegur lúðuréttur

1 kíló lúða (ýsa)

Sítrónupipar

200 g súpuhumar (rækjur)

½ púrrulaukur

Græn og rauð paprika

1 box sveppir

3 gulrætur, sneiddar

½-1 sæt kartafla

1½ askja paprikusmurostur

1 peli rjómi

2 teskeiðar paprikuduft

Salt

Karrý

2 teningar nautakraftur

3-4 matskeiðar ananaskurl

Skerið fiskinn í teninga og sjóðið í stutta stund og setjið hann í eldfast mót, kryddið með sítrónupipar og stráið humrinum yfir. Skerið kartöfluna í bita og sjóðið í smá stund og setjið yfir fiskinn. Steikið púrrulauk, papriku,

sveppi og gulrætur á pönnu og hellið yfir fiskinn. Setjið smurostinn og rjómann í pott og látið ostinn bráðna kryddið

með paprikudufti, salti, karrý og nautakrafti bætið ananskurli í. Hellið ostasósuni yfir fiskinn og bakið í ofni við 180 gráður í ca. 20 mínútur. Berið fram með hrísgrjónum og brauði.

Verði ykkur að góðu

 Eplarúlla

 6 egg

1 bolli sykur

1½ tsk. vanilludropar

1 bolli hveiti

2 tsk. Lyftiduft

 Þeyta saman egg og sykur þar til létt og ljóst bætið þá vanillu út í og að lokum blanda rólega hveiti og lyftiefni

saman við.

 5 græn epli skræld og skorin í þykka báta

 Raðið eplunum í vel smurða ofnskúffu með bökunarpappír. Hellið deiginu yfir og jafnið út. Bakið á 170° í 25 mín.

Hvolfið á plötu með pappír og rúllið varlega upp

Berið fram með ís eða rjóma

Þessi klikkar ekki.

Verði ykkur að góðu.

Skora á góðan vin minn, Sigfús Karlsson, að koma með frábæra uppskrift í næstu viku.

Nýjast