Í grunnskólum Akureyrar starfar nú danskur farkennari sem heitir Julie Fleischmann. Julie hefur dvalið á Íslandi frá síðasta hausti en hún kom til Akureyrar nú um áramótin eftir að hafa starfað í grunnskólanum á Ísafirði frá því í september 2013. Julie mun fara á milli fjögurra skóla á Akureyri fram til vorsins og vera á hverjum stað í um fjórar vikur. Þá mun hún reyna að heimsækja hina skólana eins og tími og kostur er á meðan á dvöl hennar stendur. Skólarnir sem eru svo heppnir að fá að njóta krafta Julie fram á vorið eru Naustaskóli, Brekkuskóli, Giljaskóli og Glerárskóli. Julie hefur þegar hafið störf í Naustaskóla og mun þaðan færa sig í Brekkuskóla þegar aðeins er komið inn í febrúarmánuð. Þetta kemur fram í fréttabréfi grunnskólanna á Akureyri.