Dani ráðinn þjálfari hjá GA

Brian Jensen. Mynd/GA.
Brian Jensen. Mynd/GA.

Stjórn Golfklúbbs Akureyrar hefur ráðið Brian Jensen, 33 ára Dana, sem golfkennara. Hann var valinn úr hópi tíu umsækjenda. Brian hefur lokið menntun sem kallast PGA Class A Professional, auk þess að vera Certified Trackman Master, einn af 30 í heiminum. Hann hefur undanfarin átta ár kennt kylfingum á öllum aldri og getustigum, en hluta af þeim tíma lagði hann sérstaka áherslu á kennslu barna, unglinga og afrekskylfinga.

Brian hefur störf hjá GA í janúar og tekur þá við af Ólafi Gylfasyni sem hefur verið golfkennari undanfarin þrjú ár.

Nýjast