Í dag verður dagur leikskólans haldinn hátíðlegur í leikskólum landsins í sjöunda sinn, árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín á þessum degi. Leikskólar landsins hafa á undanförnum árum haldið upp á dag leikskólans með margbreytilegum hætti og þannig stuðlað að jákvæðri umræðu um leikskólastarfið.
Dagur leikskólans er samstarfsverkefni Félags leikskólakennara, Félags stjórnenda leikskóla, mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Samtaka heimilis og skóla.
Í tilefni dagsins verður viðurkenningin Orðsporið veitt í annað sinn.