Dagur leikskólans verður haldinn hátíðlegur í leikskólum landsins í dag. Tilgangurinn er að auka jákvæða umræðu um leikskólann, vekja umræðu um hlutverk leikskóla og starf leikskólakennara og kynna starfsemina út á við. Á þessum degi taka leikskólar sérstaklega vel á móti öllum sem þar vilja líta inn og forvitnast um það góða starf sem verið er að vinna. Mikið verður um að vera í leikskólum á Akureyri og nágrenni.
Hulduheimar, Sel. Þar verður fjölskyldudagur, fjölskyldum boðið að taka þátt í hópastarfi með okkur.
Krógaból ætlar að hafa íþróttafjör í Boganum frá kl. 9.30-11.00 og bjóða foreldrum með. Settar verða upp ýmiskonar hreyfistöðvar t.d. fótbolta, hlaupabraut, langstökk, boltakast, leiki o.fl.
Lundarsel heldur uppá daginn með því að bjóða ömmu og afa leikskólabarnanna í heimsókn í leikskólann. Myndverk verða til sýnis eftir börnin á deildum þeirra og myndband Kríudeildar rúllar í salnum.
Álfaborg á Svalbarðseyri sendir kort inn á hvert heimili í hreppnum sem, kort sem krakkarnir hafa teiknað og með því kveðja frá þeim í tilefni dagsins, jafnframt sem á því er áminninng um 20 ára afmæli skólans í mars.
Krílakot á Dalvík bíður fólki að koma í heimsókn í leikskólann milli kl 14 - 16 þar sem hinar ýmsu stöðvar verða á deildunum og börn og fullorðnir geta leikið saman.
Pálmholti efra og neðra hús. Þar er ætlunin að vera sýnileg og dreifa gleði með því að fara á Hlíð, í Víðilund, Rauða krossinn, Hrísalund, Kaupang og Glerártorg.
Krummakot í Eyjafjarðarsveit. Þar verður sýning á söguaðferðarverkefni sem tveir elstu árgangarnir hafa unnið að í vetur og foreldrum, sveitarstjórn og skólanefnd boðið. Einnig verður sett upp myndlistarsýning í anddyri íþróttamiðstöðvarinnar auk þess sem bæklingur verður sendur inn á hvert heimili í sveitinni um dygðastarfið í leikskólanum og aðrar áherslur skólastarfsins tilgreindar.
Iðavöllur. Þar verður skemmtun sem nefnist Fjölskyldufjör kl.15-16:30. Foreldrar(og systkini) mæta í leikskólann og hafa með sér heita/kalda rétti á sameiginlegt hlaðborð.
Tröllaborgir. Börnin vinna samvinnuverkefni af útlínum Íslands í mósaík, hver deild einn fjórðung.
Á degi leikskólans koma allar deildir saman á Völlum og setja Ísland saman.
Verkið svo sett upp í forstofu skólans.
Kiðagil. Þar eru útbúnar hendur allra barna og starfsmanna. Í flugstöðinni verður sett upp stærðar lengja af vináttuhöndum.
Álfasteinn í Hörgárbyggð. Þar verður myndlistarsýning í andyri Húsasmiðjunnar vikuna 4 8 febrúar.