Dagforeldrar á Akureyri munu funda með bæjaryfirvöldum í dag um bætt kjör en að öðrum kosti leggja þeir niður störf eftir páska. Samkvæmt heimildum Vikudags er dagforeldrarnir m.a. ósáttir við að fá ekki veikindadaga borgaða, líkt og tíðkast í öðrum sveitarfélögum. Dagforeldrar á Akureyri hafa lengi barist fyrir því að fá þessu framgengt án árangurs. Foreldri sem Vikudagur ræddi við í morgun segir þungar áhyggjur vera á meðal barnafólks á Akureyri vegna þessa máls og ljóst að margir munu lenda í vandræðum leggi dagforeldrar niður störf.