Dæmdir í fangelsi fyrir þjófnað

Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt tvo karlmenn til sex og átta mánaða fangelsisvistar vegna innbrota í Ólafsfirði. Þeir brustust inn í félagsheimilið Tjarnarborg og stálu þaðan áfengi. Þá brutust mennirnir inn i verslun á staðnum og stálu þaðan ýmsum varningi, svo sem myndavél, símum, sígarettum, gosi og sælgæti. Báðir hafa mennirnir áður komist í kast við lögin. Þá er þeim gert að greiða málsvarnarlaun.

 

karleskil@vikudagur.is

Nýjast