Í gær var lokið við umfangsmikla bergþéttingu í Vaðlaheiðargöngum, eftir að heitavatnsæð fannst í göngunum. Ekkert var hægt að sprengja í átta daga, þar sem ekki tókst að loka æðinni. Byrjað var að sprengja á nýjan leik í gær. Vatnið er rúmlega 50 gráðu heitt og rennslið er á bilinu 60 til 70 lítrar á sekúndu. Í gær voru göngin orðin 2.002 metra löng. Ýmsir hafa velt því fyrir sér hvort flekaflóðið sem fór af stað í Vaðlaheiði í gær sé af völdum sprengina í göngunum, en forsvarsmenn Vaðlaheiðarganga segja að svo sé ekki.