Byrjað á Vaðlaheiðargöngum eftir verslunarmannahelgina

Vegagerðin gerir ráð fyrir að byrjað verði strax eftir verslunarmannahelgina að gera stöpla undir bráðabirgðabrú og leggja vegi fyrir vinnuumferð í tengslum við gerð Vaðalheiðarganga. Verktakafyrirtækið G. Hjálmarsson á Akureyri átti lægsta tilboð í verkið og hefur verið samið við fyrirtækið, en aðeins á eftir að ganga formlega frá samningum. Allt efni sem grafið verður út úr fyrirhuguðum Vaðlaheiðargöngum Eyjafjarðarmegin þarf að flytja yfir þjóðveg 1 og því þarf að byggja brú yfir veginn svo almenn umferð þar um verði ekki fyrir truflunum. Þetta kemur fram á vef RÚV.

Nýjast