Býður sig fram í 6-8 sæti á lista Framsóknarflokksins í NA-kjördæmi.

Guðmundur Gíslanson stjórnmálafræðinemi við Háskóla Íslands sækist eftir 6-8 sæti á framboðslista Framsóknarflokksins við komandi alþingiskosningar. Hann er tvítugur, uppalinn í í Sólskógum í
Fljótsdalshéraði. Á menntaskólaárum sínum bjó Guðmundur á Akureyri.

„Ég býð mig fram fyrir Framsókn því ég trúi raunverulega á samvinnuhugsjón hans miðjuhugsun. Ég vil ekki að íslensk pólitík sé ekki uppmáluð og átök og skotgröfum milli flokka, heldur tel ég það
vænlegast horfa í allar áttir með augum skynsemis og rökhyggju, þannig er hægt að ná víðtækri sátt sem er einmitt það sem Ísland þarf í dag,“ segir Guðmundur í tilkynningu.

Hans helstu baráttumál eru  mennta- umhverfis- og atvinnumál.

„ Ég tel að það þurfi vrikilega að endurhugsa menntamál á Íslandi og þá sérstaklega hvað háskóla menntun varðar. Þá hef talað fyrir því að líta til nágrana okkur á norðurlöndunum þarsem fjármagni er dælt í menntakerfið til að skapa hvata fyrir ungt fólk að mennta sig í því sem það vill mennta sig í. Það skilar sér alltaf í þjóðfélagið. Ég er mikill talsmaður skógræktar á Íslandi, og er það ljóst að það verði að hlusta á spekingana í þeirri grein. Skógrækt á Íslandi getur vel verið sjálfbær og jafnvel arðbær ef rétt er farið að. Tækifærin eru gífurlega mörg og þurfum við að grípa þau.
Einnig tel ég að að það þurfi að gera Ísland fullkomlega sjálfbært í orkumálum, og þá er ég að sjálfsögðu að tala um hreina orku. Það er bæði atvinnuskapandi og umhverfisvænt að skoða allar leiðir sem hjálpa okkur í þessum málum.“

Nýjast