Í tilefni opinberrar umræðu um skeggvöxt í samfélaginu vill spunalistakonan Margrét Vera koma því á framfæri að þrátt fyrir góðan vilja hefur henni ekki tekist að safna einu einasta skegghári.
Og hefur nú gefið upp alla von um að úr rætist. En hver er ekki meira tilbúinn að leggja átaki Krabbameinsfélagsins Karlar og krabbamein lið ?
Til þeirra verka eru allir boðnir og búnir. Og þar er Margrét Vera engin undantekning.
Á liðnu sumri varð verk hennar Brjóstkassinn hlutskarpast í keppni um útilistaverk á póstkössum í Eyjafjarðarsveit.
Spunalistakonan hefur nú ákveðið, að þar sem gera má því í skóna að atkvæðin sem réðu úrslitum í keppninni hafi komið a.m.k. að stórum hluta frá karlpeningi þessa lands sé henni ekki aðeins rétt heldur og skilt að nota verkið til góðar verka í þeirra þágu.
Hún hefur því nostrað við litlar eftirmyndir af kassanum, litlar Brjóstbirtur bústin brjóst sem prýtt geta flöskur hverskonar.
Þessi brjóst vill Margrét Vera nú bjóða til sölu og gefa hverja einustu krónu til Krabbameinsfélags Íslands í tilefni af átaki Mars mánaðar.
Brjóstin má nálgast beint úr hendi höfundar í versluninni Bakgarðinum Hólabraut 13 Akureyri eða hafa samband í síma 868-9301 eða 464-1433 og fá þau send hvert á land sem er.