Bundu mann og börðu

Héraðsdómur Norðurlands eystra
Héraðsdómur Norðurlands eystra

Tveir karlmenn hafa verið dæmdir til refsingar fyrir frelsissviptingu og líkamsárás í Héraðsdómi Norðurlands eystra. Atvikið átti sér stað ííbúð á Akureyri í haust.

Mennirnir tveir héldu fórnarlambinu nauðugu í um klukkustund, bundu fætur hans og hendur við stól þar sem annar þeirra veitti brotaþola 5-6 hnefahögg og kleip hann í putta með töng. Málið er talið tengjast peningaskuld.

Báðir ákærðu í málinu voru einnig dæmdir fyrir ólöglegan vopnaburð en við leit á heimilum mannanna fannst haglabyssa, sverð með 61 cm löngu blaði og þrjár kaststjörnur.

 Þá var annar hinna ákærðu einnig dæmdur fyrir umferðar-og fíkniefnalagabrot.

Sá sem hlaut þyngri dóm var dæmdur til fimmtán mánaða fangelsisvistar en fullnustu tólf mánaða er frestað.

 Þá varhann einnig sviptur ökuleyfi í þrjú ár auk sektar. Hinn ákærði í málinu var auk sektar dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi en fullnustu refsingar er frestað.

Nýjast