Annað kvöld, þriðjudagskvöldið 15.10 ætlar Björgunarsveitin Súlur að halda búnaðarbasar í húsnæði sveitarinnar að Hjalteyrargötu 12. Hugmyndin er að þarna geti fólk losað sig við útivistar- og skíðabúnað sem það er hætt að nota og aðrir geti gert góð kaup. Öllum er velkomið að mæta. Basarinn byrjar klukkan 20:00 en þeir sem vilja selja eru beðnir um að mæta 19:40. Nú þegar hefur Jökull Bergmann frá Arctic Heli Skiing boðað komu sína með heilan helling af skíðabúnaði, klifurdóti og fatnaði.