Vegurinn um Víkurskarð er orðinn fær. Á Norðurlandi er ófært er á Siglufjarðarvegi, Ólafsfjarðarmúla og Hólasandi. Snjóþekja og skafrenningur er á Öxnadalseiði sem og á Dalvíkur- og Grenivíkurvegi. Hálka eða snjóþekja, hálka og skafrenningur er á flestum öðrum leiðum, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.
Á Akureyri hafa helstu leiðir verið ruddar. Meðfylgjandi myndir voru teknar á Akureyri í morgun.
karleskil@vikudagur.is