Búið að kaupa bor

„Við erum þessa dagana að koma okkur fyrir á svæðinu, búið er að flytja fyrstu tækin norður og framkvæmdir hefjast væntanlega á næstu vikum,“ segir Jón Leví Hilmarsson verkefnisstjóri Ósafls, sem sér um gerð Vaðlaheiðarganga.

„Sjálfur borinn verður væntanlega komin norður um mánaðamótin mai-júní,  þetta er kraftmikill bor og kostar sitt. Til að byrja með þurfum við einn slíkan, en þegar farið verður að bora Fnjóskadalsmegin þurfum við væntanlega tvo bora. Þannig að þetta er allt saman í nokkuð góðum farvegi hjá okkur.“

Nýjast