Brýnt að flokkarnir vandi sig, segir Kristján Þór

„Stjórnarmyndunarviðræður Sjálfstæðisflokks og Framsóknar eru hvortveggja rökrétt og eðlilegt framhald þeirrar niðurstöðu sem varð í kosningum til Alþingis um síðustu helgi. Þar fengu báðir ríkisstjórnarflokkarnir, Samfylking og VG, afskaplega skýr skilaboð frá kjósendum um það að ekki væri óskað eftir pólitík þeirra við stjórn landsins,“ segir Kristján Þór Júlíusson oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi um stjórnarmyndunarviðræður Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks.

Hann bendir að flokkarnir séu með afgerandi meirihluta á Alþingi, kjósendur hafi óskað eftir því að áherslur þessarar tveggja flokka verði ráðandi, ásamt því að kallað hafi verið  meiri stöðugleika og festu við stjórn landsins í kosningunum.

„ Ég tel góð líkindi til þess að flokkarnir nái saman í viðræðum um samstarf í ríkisstjórn og á Alþingi um þau fjölmörgu verkefni sem bíða á vettvangi stjórnmálanna. Næsta kjörtímabil verður enginn dans á rósum, sérstaklega að því er lýtur að ríkisfjármálum, og því afar brýnt að flokkarnir vandi sig og gefi sér þann tíma sem þarf til að stilla saman strengi sína fyrir þau átök sem bíða við úrlausn erfiðra viðfangsefna,“ segir Kristján Þór Júlíusson.

 

karleskil@vikudagur.is

Nýjast