Brynhildur og Preben fara fyrir framboðslista Bjartrar framtíðar í NA kjördæmi

Brynhildur Pétursdóttir
Brynhildur Pétursdóttir

Framboðslisti Bjartrar framtíðar í Norðausturkjördæmi verður ákveðinn á næstu vikum. Þessa dagana vinnur nefnd að því að skipa fimm efstu sætin í öllum kjördæmum. Nánast er öruggt að Brynhildur Pétursdóttir starfsmaður Neytendasamtakanna á Akureyri fari fyrir listanum í Norðausturkjördæmi og í öðru sæti verði Preben Jón Pétursson frá Akureyri. Preben Jón var kosningastjóri L-listans á Akureyri fyrir síðustu bæjarstjórnarkosningar. Þeir sem Vikudagur hefur talað við um framboðsmál Bjartrar framtíðar telja líklegast að í næstu sætum verði fólk sem búsett er á Austurlandi og Þingeyjarsýslu.

karleskil@vikudagur.is

 

 

Nýjast