Bryndís Rún Hansen, sundkona frá Akureyri, náði góðum árangri á norska meistaramótinu í 25 m laug sem fram fór í síðasta mánuði. Bryndís, sem keppir fyrir sundfélagið í Bergen í Noregi, vann til silfur-og bronsverðlauna í einstaklingsgreinum á mótinu en gullverðlaun með boðsundsveit félagsins. Bryndís keppti einnig nýlega á sterku móti í Danmörku þar sem hún bætti sinn persónulega árangur í flugsundi og vann til bronsverðlauna. Næsta mót hjá Bryndísi verður um miðjan apríl í Bergen þar sem flestir af sterkustu sundmönnum Norðurlandanna taka þátt.