Um 90% aukning er á milli ára í ásókn til Aflsins, samtaka gegn kynferðis- og heimilisofbeldi á Akureyri. Á árinu 2012 voru alls tekin 1337 viðtöl en voru 685 árið 2011. Ég held að skýring á þessu sé sú að fólk þorir meira að leita til okkar. Þetta eru bæði ný og gömul mál og með aukinni umræðu fær fólk kjark til að stíga fram, segir Anna María Hjálmarsdóttir formaður Aflsins. Samtökin hafa lengi beitt sér fyrir opnun kvennaathvarfs á Akureyri.
Í ljósi fjölgunar á komum til Aflsins á liðnu ári segir Anna að þörfin hafi sjaldan verið meiri en nú en Kvennaathvarfið í Reykjavík er eina sinnar tegundar á landinu.
Nánar er fjallað um málið í prentútgáfu Vikudags.