Veitingastaðurinn Bryggjan á Akureyri hefur tekið til starfa í Gránufélagshúsunum við Oddeyrarbryggju á Akureyri. Heba Finnsdóttir rekur veitingahúsin Strikið og Bryggjuna, ásamt Sigurði Jóhannssyni og Róbert Hasler.
Mér finnst ánægjulegt hversu veitingareksturinn blómstrar í bænum. Það er gott bæði fyrir Akureyringa og ferðamenn að hafa meira úrval. Ég tel að aukin ferðamannastraumur til bæjarins sé ein helsta ástæðan fyrir uppgangi í veitingarekstri. Samkeppnin er alltaf að aukast og hún er af hinu góða. En eins og í mörgu öðru að þá lifa þeir hæfustu af og ég er bjartsýn á okkar rekstur, segir Heba.
Þorgeir Baldursson skoðaði Bryggjuna og tók meðfylgjandi myndir.