Brot úr sögu ÚA er til sýnis á Glerártorgi Myndir Fb síða Samherja
Ljósmyndasýningin „ Útgerðarfélag Akureyringa 80 ára ( 1945 – 2025) Sögubrot í myndum“ hefur verið sett upp við verslunarmiðstöðina Glerártorg á Akureyri og mun standa þar um tíma.
Sýningin varpar ljósi á sögu félagsins í 80 ár. Auglýsingastofan Geimstofan á Akureyri sá um grafíska hönnun sýningarinnar. Hörður Geirsson hjá Minjasafninu á Akureyri var ráðgjafi við öflun og val á myndum.
Meðfylgjandi myndir voru teknar er verið var að koma sýningunni fyrir við Glerártorg.

