Breytingar á öryggismarkaðnum á Norðurlandi

Eldvarnamiðstöð Norðurlands og Öryggismiðstöð Norðurlands hafa sameinað krafta sína undir nafni síðarnefnda félagsins og verður Helgi Jóhannsson framkvæmdastjóri. Hann hefur stýrt Eldvarnarmiðstöð Norðurlands í 15 ár og segir  hann segir að sameining félaganna styrki þau til muna og þjónustan batni. Hjá Öryggismiðstöð Norðurlands starfa nú 8 manns en fyrirtækið þjónustar allt Norðurland.

Fyrirtækið er með aðsetur að Njarðarnesi 1 á Akureyri, þar sem Eldvarnarmiðstöðin hefur verið til húsa. Til stendur að stækka húsnæðið á næstu vikum til að það henti betur auknum umsvifum á svæðinu.

Nýjast