Hin árlega áramótabrenna á Akureyri verður á sínum stað við Réttarhvamm á gamlárskvöld, auk þess sem boðið verður upp á flugeldasýningu. Kveikt verður í brennunni kl. 20.30 en flugeldasýningin hefst kl. 21.00. Það eru Norðurorka, Afmælisnefnd bæjarins, Akureyrarstofa og Framkvæmdadeild sem standa fyrir þessari uppákomu, í samstarfi við björgunarsveitina Súlur á Akureyri.
Búast má við mikilli umferð við Réttarhvamm á gamlárskvöld og því er mælt með því að fólk leggi tímanlega af stað til að vera við brennuna og sjá flugeldasýninguna.