Boston er helsti keppinautur Glerártorgs

Fasteignafélagið Eik hefur verið nokkuð til umræðu á Akureyri, eftir að félagið keypti verslunarmiðstöðina Glerártorg í byrjun ársins. Eik keypti Glerártorg af eignarhaldsfélaginu SMI, ásamt öðrum eignum á Akureyri.

 „Við tókum eftir því að eigendur Glerártorgs voru ekki að drífa reksturinn áfram, við sáum sem sagt tækifæri með því að kaupa Glerártorg. Ferlið tók hins vegar alltof langan tíma og á meðan sinnti eigandinn ekki rekstri miðstöðvarinnar. Umgjörðin var ekki í lagi,“ segir Hannes Garðarsson forstjóri Eikar. „Við verðum að snúa við neikvæðri umræðu um Glerártorg, ég lít ekki á miðbæinn á Akureyri sem helsta keppinautinn, heldur Boston í Bandaríkjunum. Við höfum sem sagt tröllatrú á Glerártorgi.“

Fjölskyldugarður

 Fyrri eigandi Glerártorgs hafði í hyggju að innrétta 40 herbergja gistirými á annarri hæð Glerártorgs. Forstjóri Eikar segir að slíkt standi ekki til. „Við erum með ákveðnar hugmyndir um nýtingu á annarri hæðinni, sem snúast um að þjóna fjölskyldufólki sem heimsækir Glerártorg.“

Nánar er fjallað um Glerártorg í prentútgáfu Vikudags

Nýjast