Börnunum finnst vanta rusladall

Bréf frá krökkum á Klöppum til bæjarstjóra.
Bréf frá krökkum á Klöppum til bæjarstjóra.

„Bæjarstjórinn fær allskonar erindi. Hér er eitt sem mér finnst sérstaklega fallegt og skýrt. Tvær teiknaðar myndir af fígúrum sem eru að henda rusli í rusladall. Þetta kemur frá krökkum á leikskóladeildinni Helli í (á) Klöppum sem leika sér mikið í Kvenfélagsreitnum við Áshlíð og vilja hafa jörðina fína eins og segir í bréfinu. Þarna vantar að þeirra mati rusladall. Þökkum þessa fallegu beiðni og munum setja upp rusladall...þakkir til barnanna fyrir fallegt bréf og teikningar og þarft erindi,“ segir Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri á facebook þar sem einnig er bréfið frá börnunum á Klöppum.

Nýjast