Um 86 börn voru send heim frá leikskólanum Flúðum á Akureyri um hádegisbil í dag. Ástæðan er klóak sem flæðir upp úr klósettum á fjórum stöðum og verður leikskólinn lokaður það sem eftir er dags. Forstofa leikskólans er á floti en mest flæddi á neðri hæð hússins. Það er ekki hollt fyrir börnin að vera í kringum klóak og því ákváðum við að loka. Það gengur heldur ekki að börnin komist ekki á klósettið. En við aðstoðum þá foreldra að sjálfsögðu sem sjá sér ekki fært að ná í börnin sín strax, segir Hildur Ólafsdóttir aðstoðarleikskólastjóri. Unnið er að viðgerðum og vonast er til að hægt verði að opna leikskólann aftur í fyrramálið.