Akureyrska sundkonan Bryndís Rún Hansen undirbýr sig af kappi þessa dagana fyrir Evrópumótið í 25 m laug. Mótið fer fram í Frakklandi dagana 22.-25. nóvember. Bryndís keppir í 50 og 100 m skriðsundi og flugsundi.
Þau mót sem ég hef keppt á í haust hef ég tekið eins og æfingu til að koma mér í keppnisgírinn fyrir EM. Ég hef bæði verið að æfa meira og breytt æfingaprógramminu mínu með því að æfa Crossfit, segir Bryndís við Vikudag.
Athygli vekur að allir keppendur íslenska landsliðsins þurfa sjálfir að bera straum af öllum kostnaði vegna mótsins eða um 300 þúsund krónur á mann. Bryndís fékk fregnir af þessu þegar rúm vika var í brottför til Frakklands.
Ég reiknaði með að þurfa borga sjálf um 180.000 krónur sem er aðeins meira en ég borgaði í hin tvö skiptin sem ég hef farið á EM25. Þetta er þungur baggi og frekar vont að heyra þetta svona skömmu fyrir mót. Samherjastyrkurinn sem ég fékk í fyrra hjálpar mér hins vegar mjög mikið. Svo er ég líka að fá styrk frá Akureyrarbæ og SSÍ sem er mjög gott. Þessir styrkir eru um það bil helmingur af því sem ég þarf að borga sjálf.
Norskir þurfa ekkert að borga
Það er mjög svekkjandi að sjá hvernig norska landsliðið hefur það miðað við það íslenska. Norsku sundmennirnir ferðast mjög mikið bæði í æfingabúðir og keppnisferðir og þurfa ekkert að borga, segir Bryndís, sem keppir fyrir Bergensvömmerne í Noregi.
Er það ekki áhyggjuefni að landsliðsfólk þurfi að greiða fyrir þetta sjálft?
Jú, maður er að leggja mikið á sig og þarf svo að borga á aðra milljón á ári. Ég gæti aldrei æft eins mikið og ég geri, verið í skóla og unnið fyrir mér sjálf. Þess vegna er mjög mikilvægt að eiga foreldra sem styðja mig í öllu sem ég geri.