Bækurnar eru að týnast inn. Það koma heilu stæðurnar daglega og allt að fyllast, segir Guðrún Karítas Garðarsdóttir verslunarstjóri hjá Eymundsson á Akureyri. Jólabókasalan er farin af stað en eflaust verða bækur í mörgum pökkum þessi jól, líkt og undanfarin ár. Margir af fremstu rithöfundum þjóðarinnar gefa út bækur fyrir jólin og má þar nefna Arnald Indriðason og Yrsu Sigurðardóttir.
Arnaldur og Yrsa hafa skarað framúr hvað vinsældir varðar síðustu árin og sá slagur virðist ætla að halda áfram. Það er alltaf mikil eftirspurn eftir þeirra bókum. Það væri samt gaman að sjá nýju vonarstjörnu og aldrei að vita nema að hún leynist þarna á milli, segir Guðrún.
Margar spennandi bækur
Bækur eru klassísk jólagjöf og ég held að þetta verði frábær bókajól. Það er mikið af spennandi titlum og úrvalið verður einstaklega mikið í ár. Útgefendur eru greinilega bjartsýnir þótt að rafbókin sé komin. Prentaðar bækur virðast standast tímans tönn. Ég held líka að flestir vilji fá bækurnar í hendurnar, geta flett þeim og lyktað af pappírnum.
Barnabækur vinsælar
Guðrún segir mikla grósku vera á barnabókamarkaðnum. Vinsælasta barnabókin um þessar mundir er Aukaspyrna á Akureyri eftir Gunnar Helgason.
Hún gerist á N1-fótboltamótinu og manni líður bara eins og maður sé staddur á vellinum við lestur bókarinnar. Höfundurinn nær algjörlega að fanga akureyrsku stemmninguna, segir Guðrún.
throstur@vikudagur.is