Bleyta í kortunum

Í dag verður hæg norðlæg átt á Norðurlandi eystra og lítilsháttar rigning eða súld. Í nótt verður úrkomumeira. Hiti verður á bilinu 2 til 7 stig, en 0 til 5 stig á morgun, svalast inn til landsins.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á föstudag:

Norðan 5-13 m/s. Slydda NV-til en rigning fyrir austan, og þurrt að mestu um landið sunnanvert. Hiti 1 til 10 stig, mildast syðst.

Á laugardag:
Snýst í sunnan 3-8 m/s. Dálitlir skúrir eða slydduél síðdegis S- og V-lands, en léttir til á N- og A-landi. Hiti 1 til 8 stig að deginum.

Á sunnudag:
Sunnan 3-8 m/s. Lítilsháttar úrkoma um landið V-vert. Víða bjart annars staðar en fer að rigna sunnan og suðaustantil um kvöldið. Hiti 3 til 9 stig.

 

Meðfylgjandi mynd var tekin í Síðuhverfi á Akureyri í morgun

Nýjast