Björn Valur lofar ræðumönum Sjálfstæðiflokksins kippum af bjór

Björn Valur Gislason þingmaður Vinstri grænna segist hafa verslað tvisar í ÁTVR á kjörtímabilinu. Í bæði skiptin til að uppfylla áheit um málþóf Sjálfstæðisflokksins. Á heimasíðu sinni í dag heitir hann enn á þingmenn Sjálfstæðisflokksins. „Sá þingmaður Flokksins sem nær að halda 10 ræður eða fleiri í umræðunum um rammaáætlun fær frá mér kippu af Kalda, aðra kippu við 20 ræður og svo koll af kolli þar til Kaldinn klárast. Ég geri engar kröfur um efnislegt innihald eða gæði málflutningsins ræðumanna enda varla sanngjarnt að ætlast til að mikið kjöt sé á beininu þegar búið er að naga það 10 sinnum eða oftar,” segir Björn Valur á heimasíðu sinni www.bvg.is

karlelskil@vikudagur.is

Nýjast