Björn Valur hafnaði í sjöunda sæti í forvali VG í Reykjavík

Björn Valur Gíslason   Mynd/Karl Eskil
Björn Valur Gíslason Mynd/Karl Eskil

Björn Valur Gíslason þingmaður Vinstri grænna hafnaði í sjöunda sæti lista flokksins í forvali flokksins í Reykjavík. Björn Valur ákvað eins og kynnugt er að færa sig úr Norðausturkjördæmi til Reykjavíkur. Á Smugunni er greint frá úrslitunum:

 

 

Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningamálaráðherra og Svandís Svavarsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra munu skipa fyrstu sætin á framboðslistum VG í Reykjavík. Katrín hlaut flest atkvæði í fyrsta sætið eða 547 en Svandís 432.

Árni Þór Sigurðsson og Álfheiður Ingadóttir alþingismaður munu samkvæmt niðurstöðunum skipa annað sætið í Reykjavíkurkjördæmunum. Árni Þór fékk 324 og Álfheiður 322. Steinunn Þóra Árnadóttir og Ingimar Karl Helgason verða í þriðja sæti listanna. Steinunn Þóra fékk 373 en Ingimar Karl 368.

Fjölmennt er á kosningavöku VG sem haldin er í Iðuhúsinu en mikil spenna ríkti áður en úrslitin voru kunngerð enda sótt að þingmönnum og ráðherrum. Litlu munaði á Ingimar og Birni Vali Gíslasyni sem samkvæmt þessu er langt frá þingsæti eða einungis fjórum atkvæðum. Hann fékk 364 atkvæði, segir á Smugunni í kvöld.

karleskil@vikudagur.is

 

 

Nýjast