Á hádegi í dag lauk skilafresti á listum eða tillögum um menn í stjórnarsæti vegna kjörs stjórnar og trúnaðarráðs fyrir starfsárið 2013-2014 hjá stéttarfélaginu Einingu-Iðju. Ekki bárust tillögur eða listar annar en frá trúnaðarráði og teljast þeir félagsmenn sem trúnaðarráð hefur gert tillögu um sjálfkjörnir. Listi trúnaðarráðs tekur því við félaginu á næsta aðalfundi.
Stjórnin verður því óbreytt fyrir utan að á síðasta aðlfundi félagsins var samþykkt að varaformaður stærsti deildarinnar muni ekki lengur eiga sæti í stjórn félagsins. Það mun taka gildi frá og með næsta aðalfundi.