Tveir hópar frá Súlum björgunarsveitinni á Akureyri hafa verið til aðstoðar vegfarendum í ófærðinni í dag. Í bænum er nú allt á kafi í snjó, meira en sést hefur undanfarin ár og bætir enn í. Sveitin hefur lokið línuvinnu með Landsneti í dag en snjóbíll hennar er nú að aðstoða starfsmenn RARIK að komast yfir Víkurskarðið en gengur hægt.