Bjartsýn á árangur

„Þetta var ágætur fundur. Við greindum frá okkar hugmyndum og það voru allir sammála um að eitthvað verður að gera í málunum,“ segir Kamilla Dóra Jónsdóttir nemandi í Menntaskólanum á Akureyri.

Kamilla fundaði nýverið með fulltrúum skólanefndar ásamt Helenu Rut Pétursdóttur nemanda við MA um bætta stærðfræðikennslu í 10. bekk.

Þær Kamilla og Helena rituðu opið bréf til skólanefndar í Vikudegi, ásamt tveimur öðrum nemendum skólans, þar sem lýst var áhyggjum af stöðu nemenda við lok grunnskóla, einkum í stærðfræði. „Ég fann fyrir mikilli jákvæðni og samhug á fundinum. Það verður unnið í þessu áfram og ég er því ágætlega bjartsýn á að þetta framtak okkar nemenda muni skili árangri,“ segir Kamilla.

Nýjast