Bjartmar og Rage Against The Machine

Bjartmar Guðlaugsson.
Bjartmar Guðlaugsson.

Það verður nóg um að vera á Græna hattinum á Akureyri um helgina. Þýski Tónlistarmaðurinn Daníel treður upp í kvöld, fimmtudag,kl. 21:00. Þá verður hljómsveitin Rage Against The Machine heiðruð fyrir þrotlausa baráttu í þágu mannréttinda sem hún kýs að koma á framfæri í formi rokktónlistar. 20 ár eru liðin síðan fyrsta plata sveitarinnar kom á markað og setti hún mark sitt á rokksöguna með pólitísku rappi / rokki á eftirminnilegan máta. Því verður fagnað með tónleikum á Græna Hattinum föstudagskvöldið kl. 22:00.

Sveitina skipa Egill "Tiny" Thorarensen - Rapp / Söngur (Quarashi), Franz Gunnarsson - Gítar (Ensími / Dr. Spock), Arnar Gíslason - Trommur (Ensími / Dr. Spock) og Guðni Finnsson - Bassi / Bakrödd (Ensími / Dr. Spock).

Bjartmar Guðlaugsson mun halda útgáfutónleika á laugardagskvöldið í tilefni af þriggja diska safni sem hann gaf nýverið út. Tónleikarnir hefjast kl. 21:00. Á miðnætti verður síðan sjómannadansleikur þar sem Bjartmar og Bergrisarnir leika fyrir dansi.

 

Nýjast