Bjarni Jónasson sem gengt hefur starfi forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri mun sinna starfinu í tvo mánuði til viðbótar. Halldór Jónsson forstjóri FSA hefur verið í námsleyfi síðastliðið eitt ár og átti að koma til starfa 1. febrúar. Vegna starfa Halldórs fyrir heilbrigðisráðuneytið var því frestað til 1. apríl og Bjarni því skipaður forstjóri til þess tíma.
Halldór hefur tekið að sér annað sérverkefni fyrir ráðuneytið og hefur Bjarni því verið skipaður forstjóri stofnunarinnar til 1. júní.
karleskil@vikudagur.is