Bjarni áfram forstjóri FSA tímabundið

Bjarni Jónasson sem gengt hefur starfi forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri mun sinna starfinu til loka mars.  Halldór Jónsson forstjóri FSA hefur verið í námsleyfi síðastliðið eitt ár og átti að koma til starfa í næstu viku, eða 1. febrúar.

Halldór hefur dvalið við nám og störf í Noregi, en þar kynnti hann sér m.a. stjórnun og rekstur sjúkrastofnana.  Hann mun næstu tvo mánuði sinna sérverkefni á vegum Heilbrigðisráðuneytisins og Bjarni starfar því áfram sem forstjóri þann tíma.

Nýjast