Björgunarsveitin Garðar er einn af hornsteinum mannlífsins á Húsavík. Þar hefur um árabil verið unnið ómetanlegt starf af óþreytandi sjálfboðaliðum í áranna rás en sveitin var stofnuð að áeggjan Vilhjálms Pálssonar árið 1959 eftir að tveir menn fórust með skipinu Mái TH194.
Til að tryggja framtíð björgunarsveitarinnar og halda starfinu jafn öflugu og raun ber vitni er nauðsynlegt að huga stöðugt að endurnýjun á mannskapnum. Það gerir Garðar með miklum sóma en þar er rekin öflug unglingadeild þar sem bjargvættir framtíðarinnar fá fyrsta flokks þjálfun. En svo er unglingastarfið líka ótrúlega spennandi, skemmtilegt og frábær forvörn.
Ingibjörg Benediktsdóttir, formaður björgunarsveitarinnar Garðars á Húsavík, segir að unglingastarf sveitarinnar hafi gengið mjög vel í vetur. Hópurinn samanstendur af allt að 20 unglingum, en fastur kjarni 12-14 ungmenna mætir mjög reglulega.
Starfið er ætlað ungmennum í 10. bekk, en Ingibjörg segir að sveitin hafi verið að skoða að taka inn fleiri árganga. „Við megum taka inn krakka allt niður í 8. bekk, en það er hægara sagt en gert að finna sjálfboðaliða til að hafa umsjón með starfinu. Við erum samt búin að vera fá marga nýja meðlimi inn í starfið hjá okkur og þegar fleiri hafa lokið þjálfun, þá vonandi fáum við fleiri umsjónarmenn og getum þá tekið inn fleiri krakka,“ segir Ingibjörg og bætir við að í starfinu sé blandað saman hæfilegu magni af gamni og alvöru
„Unglingarnir læra grunninn að því að vera í björgunarsveit og það sem þarf til að komast á útkallslista. Við erum með alls konar námskeið eins og t.d. vefnámskeið hjá Björgunarskólanum þar sem farið er yfir útbúnað í útilegu almennt. Hvað er best að hafa af búnaði og fatnaði, svo er kennt á kompás, algengustu hnúta og að bjarga sér úti í náttúrunni,“ útskýrir Ingibjörg og leggur ekki dul á það að krökkunum finnist skemmtilegast þegar mikið er um að vera. Það sé mikilvægur þáttur í þjálfuninni að fá útrás fyrir adrenalínið.
„Yfir veturinn eru þau mikið í að æfa rústabjörgun þar sem þau búa til aðstæður inni í björgunarsveitarhúsi og æfa sig við að bjarga hvort öðru. Í vetur vorum við með fjarskiptanámskeið þar sem við kenndum þeim að nota talstöðvar. Svo er auðvitað eitt af því skemmtilegasta sem þau gera að stökkva í sjóinn. Við fórum með þau snemma í vor á alla bátana okkar og jetskii. Einhverjir fóru í sjóinn og við fórum undir Geo Sea fossinn og inn í Hákarlahelli. Við áttum alveg frábæran dag. Svo var planið að fara með þau í smá köfunaræfingu, vorum búin að fá lánaða sundlaugina undir það en þá hitti það þannig á að þetta var á sama tíma og Samfés svo köfunin bíður betri tíma. Svo hefur auðvitað verið farið reglulega með þessa krakka að æfa bjargsig sem er alltaf vinsælt. Við erum alltaf að reyna skiptast á að fara með þeim í þessi námskeið. Við erum með fasta umsjónarmenn en svo komum við hin inn í starfið þegar á þarf að halda. Ég kom til dæmis inn í þetta þegar við vorum með fjarskiptanámskeiðið,“ segir Ingibjörg.
Þá fá ungmennin allskonar fræðslu eins og t.d. í veðurfræði, hvernig á að lesa í veðrið til að sjá hvenær von er á vondu veðri eða óveðri. „Þeim finnst það kannski ekki það skemmtilegasta í þessu, frekar svona þurrt og óspennandi en við pössum okkur á því að vera alltaf með eitthvað spennandi og skemmtilegt í bland,“ segir hún.
Björgunarsveitarstarfið er ekki bara æfingar og námskeið til að undirbúa sig undir það að bjarga mannslífum. Einn mikilvægasti liðurinn í starfi björgunarsveitanna er fjáröflunin. Þar láta krakkarnir svo sannarlega ekki sitt eftir liggja en unglingarnir eru mjög duglegir við að hjálpa til við allt sem þarf að gera.
Ingibjörg segir að þau mæti alltaf í dósatalningu og séu dugleg að fylgjast með ef eitthvað sé um að vera.
„Núna síðast náðum við að tæma báða gámana okkar sama kvöldið bara vegna þess að unglingarnir mættu í þetta með okkur. Þau eru líka bara mjög dugleg að fylgjast með ef eitthvað er um að vera. Ef þau sjá að það er einhver í húsi, þá koma þau og fá að vera með ef við erum að gera eitthvað. Við erum líka oft með vinnukvöld á þriðjudögum og þau eru nokkur sem mæta alltaf á þau. Þó það sé ekki alltaf eitthvað spennandi að gerast þá taka þau þátt, stundum er bara setið í aðstöðunni og kjaftað,“ segir Ingibjörg og bætir við að unglingastarfið sé ekki síður mikilvægt forvarnastarf eins og íþróttirnar en unglingahittingar eru gjarna á föstudögum.
Unglingarnir njóti þess svo sannarlega að taka þátt í þessu starfi enda komi það fyrir að fresta þurfi fjölskylduferðum til að taka þátt.
„Já, ég fékk einu sinni að heyra það frá einni mömmunni að það væri ekki hægt að fara í sumarbústað vegna þess að barnið vildi ekki missa af viðburði með björgunarsveitinni,“ segir Ingibjörg og hlær.
„Við erum mjög bjartsýn á þetta unglingastarf inn í framtíðina og ég er að vona að við getum fjölgað umsjónarmönnum svo við getum tekið 9. bekkinn inn líka. Það er svo mikilvægt að vekja áhuga krakkanna nógu snemma og þá höldum við þeim áfram í sveitinni,“ segir Ingibjörg að lokum.