Biskup Íslands hefur lagt til að Möðruvallaklaustursprestakall, Hríseyjarprestakall og Dalvíkurprestakall renni saman í eitt prestakall, þar sem starfi tveir prestar, annar búsettur á Dalvík og hinn á Möðruvöllum.
Boðað er til safnaðarfundar í Möðruvallaklausturssókn í kvöld, þar sem þessi tillaga verður rædd. Biskup óskar eftir umsögn safnaðarfundar um atriði sem tengjast þessari tillögu.