Skólanefnd Akureyrarbæjar hefur undanfarin ár veitt nemendum, kennurum og starfsmönnum viðurkenningar fyrir að hafa skarað fram úr á einhvern hátt. Viðurkenningar voru nýverið veittar í fjórða sinn. Níu nemendur fengu viðurkenningu og sjö starfsmenn.
Heiðursviðurkenning
Birgir Helgason hlaut heiðursviðurkenningu fyrir að veita nemendum Barnaskóla Akureyrar ómetanlegt tækifæri til söngs og hljóðfæranáms í áraraðir. Hann starfaði þar sem tónlistarkennari frá 1959 til 1998. Hann stjórnaði Kór Barnaskóla Akureyrar, söng við jólaguðþjónustur í Akureyrarkirkju og söng inn á nokkrar hljómplötur.
Birgir stjórnaði ekki aðeins kórnum, heldur samdi hann líka mörg laganna sem sungin voru. Oft voru textarnir sóttir í smiðju samstarfsmanna hans, Tryggva Þorsteinssonar, skólastjóra og Rósbergs G. Snædals, kennara. Birgir samdi einnig lag við skólasöng Barnaskóla Akureyrar, Rís vor skóli hátt við himin, segir í umsögn vegna heiðursviðurkenningarinnar.
karleskil@vikudagur.is