Bílstjórar mótmæla salti

Akureyri í morgun. Mynd/Þröstur Ernir.
Akureyri í morgun. Mynd/Þröstur Ernir.

Leigubílstjórar  á BSO á Akureyri hafa sent frá sér ályktun þar sem þeir mótmæla salti á götum bæjarins. „Við teljum að þetta sé ekki til bóta á nokkurn hátt, að þetta henti ekki á þessu svæði miðað við það veðurfar sem hér ríkir. Það snjóar oft ofan í saltið og þá missir það eiginleikana sem það átti að hafa. Eins sýnist okkur þetta mest vera gert á strætisvagnaleiðum. Það væri frekar til athugunar að setja vagnana á nagladekk. Við teljum að langflestir bæjarbúar séu mótfallnir saltburði  og vilji freka hverfa aftur til sandburðar. Svo ekki sé minnst á sóðaskapinn sem af þessu hlýst,“ segir í ályktun.

Nýjast