Bílaflotinn stækkar ört

Mynd/Karl Eskil.
Mynd/Karl Eskil.

Fólksbílum á Akureyri hefur fjölgað um rúmlega helming á undanförnum tuttugu árum. Árið 1994 voru 6.246 bílar skráðir en eru í dag 13.092, sem þýðir fjölgun um 6000 bíla. Það sem af er ári hafa sextíu fólksbifreiðar verið nýskráðar á Akureyri en níu bifreiðar afskráðar, samkvæmt tölum frá Samgöngustofu. Eldsneytisstöðvum á Akureyri fer einnig fjölgandi og er sú þrettánda í burðarliðnum.

Árið 1994 voru bæjarbúar tæplega 15 þúsund, sem þýðir að þá voru 0,4 bílar skráðir á hvern íbúa en í dag eru hins vegar skráðir 0,7 bílar á hvern íbúa.

throstur@vikudagur.is

Nýjast