Þetta er í raun og veru bylting. Þrátt fyrir að núverandi verkstæði teljist tæknilega ágætlega búið, er varla hægt að líkja þeim saman, munurinn er svo mikill, enda eru tækniframfarir örar á þessu sviði, segir Steingrímur Birgisson forstjóri Hölds á Akureyri um nýtt bílaverkstæði fyrirtækisins við Þórsstíg, sem opnar á næstu dögum.
Nánast allur tækjabúnaður er nýr og er samkvæmt ströngustu kröfum sem bílaframleiðendur gera til viðurkenndra þjónustuverkstæða. Við völdum að uppfylla staðla Audi og Bens í einu og öllu, einfaldlega vegna þess að Þjóðverjarnir gera mjög svo ríkar kröfur til slíkra verkstæða, segir Steingrímur.
Eins og sjúkrahús
Hérna áður fyrr voru bifvélavirkjar með sleggjuna og kúbeinið á lofti og skítugir upp fyrir haus. Bílaverkstæði nútímans eru gríðarlega tæknivædd og starfsfólk klæðist nánast ljósum sloppum. Munurinn er mikill. Sumir segja að þetta nýja verkstæði sé eins og sjúkrahús, þar sem tæknin er allsráðandi og starfsstöðvar tandurhreinar.
Nánar er fjallað um nýja verkstæðið í prentútgáfu Vikudags