Tæplega 11.000 þúsund gestir renndu sér niður brekkur Hlíðarfjalls ofan Akureyrar um páskana. Að sögn Guðmundar Karls Jónssonar forstöðumanns eru nýliðnir páskar þeir aðsóknarmestu í sögu Hlíðarfjalls. Veðrið var með eindæmum gott og lék við gesti. Það gekk allt áfallalaust fyrir sig og við erum alsæl með þetta, segir Guðmundur Karl. Skíðavetrinum er ekki lokið í Hlíðarfjalli og verður opið næstu þrjár vikur eða til 28. apríl.