Bergþóra vill 1. eða 2. sæti

Bergþóra Þórhalldsdóttir
Bergþóra Þórhalldsdóttir

Bergþóra Þórhalldsdóttir  aðstoðarskólastjóri við Brekkuskóla á Akureyri, stefnir á 1. eða 2. sæti  í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akureyri.

„Velferð íbúa Akureyrar þarf ávallt að vera í forgrunni í allri ákvarðanatöku. Hana þarf að tryggja með góðri þjónustu við íbúa og öflugum forvörnum. Akureyrarbær hefur staðið vel að uppbyggingu stoðþjónustu í gegnum árin, en verkefninu er langt í frá lokið. Málefni sem snúa að heilbrigðisþjónustu eru hvað mest aðkallandi og þau verkefni þarf að vinna í nánu samstarfi við ríkisvaldið. Velferðakerfið í heild þarf að vera markvisst og hvetjandi til sjálfshjálpar,“ segir Bergþóra á Facebooksíðu sinni, sem sett var í loftið í dag.

Nýjast