Beint flug frá Akureyri breytist í rútuferð suður

Akureyrarflugvöllur á fimmta tímanum. Mynd/Karl Eskil
Akureyrarflugvöllur á fimmta tímanum. Mynd/Karl Eskil

Um 170 farþegar áttu bókað flug með Ferðaskrifstofu Akureyrar frá Akureyri til Dublin á Írlandi klukkan 07:45 í fyrramálið. Þar sem útlit er fyrir að ekki verði hægt að lenda á Akureyrarflugvelli í fyrramálið var ákveðið að flytja farþegana suður nú síðdegis og lögðu rúturnar af stað á fimmta tímanum. Flogið verður frá Keflavíkurflugvelli á sama tíma í fyrramálið, klukkan 07:45. Starfsfólk Ferðaskrifstofu Akureyrar segir að farþegarnir hafi almennt tekið þessum breytingum með jafnaðargeði.

„Það er lítið hægt að gera, en auðvitað er maður svolítið svekktur. Ætli ferðin suður teki ekki svona 8 klukkutíma, en svo er bara 3 tíma verið að fljúga út á morgun. En við búum á Íslandi og á þessum árstíma má alltaf búast við öllu, þannig að ég verð bara að sætta við mig þetta,“ sagði farþegi við Vikudag á Akureyrarflugvelli.

Farþegarnir eru flestir búsettir á Eyjafjarðasvæðinu.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast