Örfáir dagar eru í stór tímamót hjá bátasmiðjunni Seiglu á Akureyri, en um næstu mánaðamót verður hundraðasta bátnum sem smíðaður er hjá fyrirtækinu rennt út úr smiðjunni. Um er að ræða 70 manna ferju sem siglt verður til nýrrar heimahafnar í Færeyjum. Seigla hlaut Athafna- og nýsköpunarverðlaun Akureyrarbæjar en þau voru afhent á Vorkomu í Ketilhúsinu.
Sverrir Bergsson eigandi Seiglu segir margt spennandi í gangi hjá fyrirtækinu og að reksturinn hafi gengið vel síðustu árin. Fyrirtækið var flutt norður í land árið 2007, en þá keypti fjárfestingarfélag í kringum Slippinn á Akureyri hlut í félaginu og sá um að reisa bátasmiðju á athafnasvæði sínu.
Við gripum tækifærið og fluttum starfsemina norður, vorum í of litlu húsnæði syðra og höfðum ekki fundið neitt sem hentaði þegar okkur bauðst ágætt húsnæði hér, segir Sverrir.
Nánar er rætt við Sverri í prentútgáfu Vikudags.